Innihald

50 g bláber


500 g hrámarsípan


250 g Toblerone, saxað


250 g dökkt súkkulaði, brætt


15 g palmínfeiti


heslihnetur

Bláberjakonfekt

Setjið bláberin í pott og látið suðuna koma upp. Merjið þau og hrærið síðan 100 g af Tobleroneinu saman við. Setjið því næst blönduna í skál, látið kólna svolítið og hnoðið síðan marsípaninu saman við. Fletjið næst massann út með kökukefli (gott er að strá svolitlum flórsykri undir). Stingið út mola með t.d. litlu staupi eða litlum skrautjárnum. Setjið molana í kæli um stund. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Bræðið palmínfeitina og blandið henni saman við súkkulaðið. Hjúpið síðan molana með súkkulaðinu og skreytið með hálfum heslihnetukjörnum.



 
 

Fyrir rúmlega 100 árum síðan fullkomnuðu Theodor Tobler og félagar hið gómsæta Toblerone súkkulaði.

 

Leyfðu Toblerone að veita þér innblástur með nýrri uppskrift í hverjum mánuði. Skráðu þig á póstlistann og við skulum með ánægju senda þér nýjar og fjölbreyttar leiðir mánaðarlega til að nýta gómsætt Toblerone súkkulaði við baksturinn.